brandarar smandarara:)

Maður kemur inn á Skuggabarinn og pantar drykk. Stuttu seinna heyrir barþjónninn síma hringja og sér að maðurinn lyftir hendinni upp að andlitinu og byrjar að tala. Þegar hann hefur lokið við að tala spyr þjónninn hvað sé í gangi. Maðurinn segir að hann noti símann það mikið að hann hafi látið græða GSM síma í hönd sína svo hann þurfi ekki alltaf að muna að hafa hann með. Þjóninn trúir þessu ekki svo maðurinn hringir í númer, setur höndina á eyra þjónsins og leyfir honum að heyra þegar síminn hringir hinum megin. Næst spyr maðurinn hvar klósettið sé og fer þangað eftir að hafa sagt þjóninum að hann verði enga stund að þessu. Þjónninn fyllti glasið hjá manninum og beið. Þegar hálftími er liðinn og maðurinn kemur ekki út af klósettinu fór þjóninn að undrast og að lokum fór hann inn á klósett að gá hvort allt væri í lagi. Þegar hann kemur inn sér hann manninn liggjandi á gólfinu, buxnalaus, með fæturnar upp á vegg og salernispappír rúllandi út úr afturendanum. "Hvað er um að vera?" spurði þjónninn. Maðurinn brosti kindarlega og sagði, "bíddu aðeins, ég er að fá fax."


Virðulegur maður kemur inn á barinn á Sögu og pantar fjögur glös af XO koníaki. Þjónninn afgreiðir manninn strax og raðar glösunum snyrtilega á barborðið. Maðurinn sturtar í sig úr hverju glasinu á eftir öðru og er búinn með alla sjússanna áður en 5 mínútur eru liðnar. Þjónninn segir í spurningartón: "það er eins og þér liggi á." "Þér myndi líka liggja á ef þú værir með það sama og ég," sagði maðurinn. "Hvað ertu eiginlega með?" spurði þjónninn í samúðartón. "Bara fimmtíu kall."


Einu sinni voru fjórar nunnur að fara til Himnaríkis. Þar hittu þær Lykla-Pétur og spurðu hann hvernig þær kæmust inn. Hann sagði að þær verði að svara einni spurningu og spurði svo fyrstu nunnuna. „Hefurðu einhverntímann komist í snertingu við karlmann." Hún svaraði, „ég hef bara snert einn með puttanum." Þá sagði Lykla-Pétur: „þvoðu þér þá um puttann og gakktu inn." Hún gerði það. Svo spurði hann næstu nunnu sömu spurningar og hún svaraði: „Ég hef bara faðmað einn." Lykla-Pétur sagði þá: „Þvoðu á þér handleggina og gakktu inn." Það gerði hún. Þá ryðst sú fjórða framfyrir þá þriðju og Lykla-Pétur spyr. „Af hverju ryðst framfyrir systur þína?" Þá svarar hún. „Ég ætla sko ekki að þvo mér um munninn eftir hún þvær sér um rassinn."


Tveir stóðu fyrir framan himnaríki sem hétu Jói og Kalli.
Jói spurði: hvernig dóst þú?
Kalli: ég fraus til dauða, en þú
Jói: ég dó úr hamingju
Kalli: hvernig getur maður dáið úr hamingju
Jói: fyrsta daginn kom ég heim og allt var hreint, konan mín tekur aldrei til þannig að ég vissi að hún var að halda framm hjá, ég leitaði um allt hús en fann engan.
Annan daginn kom ég heim og það var matur á borðinu,kona mín eldar aldrei þannig að ég vissi að hún að halda fram hjá svo að ég leitaði út um allt en fann engan.
þriðja daginn kom ég heim og fann blóm á borðinu, konan mín kaupir aldrei blóm þannig að ég vissi að hún að halda framhjá ég leitaði um allt en fann engan þannig að ég hreinlega dó á staðnum.
Kalli:AULINN ÞINN ef þú hafðir bara opnað ísskápinn værum við báðir á lífi.

jæja þá er það komið..

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Könnun

hvað á að gera um verslunarmannahelgina?

Leit

Leikur dagsins